Örvitinn

Skondin samsæristýpa

Borgarfjörður
Borgarfjörður
Skondin týpa:

Gaur sem segir að fólk sé "auðtrúa" því það trúir "opinberum" upplýsingum en sami gaur virðist um leið trúa nær öllum samsæriskenningum og það skiptir engu máli hvort þær stangast á eða ekki.

Skrifaði þetta á Twitter eftir að hafa séð íslenskan samsærissinna dreifa og "læka" allskonar rugli.

Trumpismi síðustu ára hefur dregið ótrúlega marga út í heim samsærissinna og það er næstum því heillandi, en þó aðallega dálítið sorglegt, að fylgjast með þessu fólki falla fyrir næstum öllum hugsanlegum samsæriskenningum, jafnvel þegar þær stangast á.

Tvítið var einfalt, en að sjálfsögðu er hægt að rangtúlka það.

samsæriskenningar
Athugasemdir



ath. póstfangið birtist ekki á síðunni

má sleppa

(næstum öll html tög virka, einnig er hægt að nota Markdown rithátt)