Örvitinn

Slagurinn við lúpínuna

Skruppum í bústað og ég dundaði mér við að slá lúpínu. Þetta er bara byrjunin á þessum slag, á eftir að taka nokkur sumur en tekst vonandi að lokum. Slæ aftur næst þegar þegar við förum.

nýslegin lúpína
Sló helling af lúpínu.
Lúpína er fín meðan hún er ekki í bakgarðinum mínum! Er dálítið frek og tekur yfir berjalyng.

Óþarfi er að fjarlægja lúpínu sem slegin er, hún rotnar og örvar grasvöxt.

Segir vísindavefurinn og ég tek glaður mark á því!

dagbók
Athugasemdir



ath. póstfangið birtist ekki á síðunni

má sleppa

(næstum öll html tög virka, einnig er hægt að nota Markdown rithátt)