Örvitinn

Ríkiskirkjan og fjölmiðlaeinelti
Það er eitthvað magnað við það að prestur kvarti undan einelti fjölmiðla í útvarpsmessu í Ríkisútvarpinu.  Örn Bárður er einstakur.  Sami fjölmiðill og útvarpaði messu séra Arnar hefur hvern einasta daga á  fokking BÆN eftir að búið er að tala um veðrið.    Erum við að tala um fjölmiðlana sem hóa í prest í hvert skipti sem einhver tognar? (eða því sem næst)

Valgarður Guðjónsson bloggar um fjölmiðla, kirkju og einelti.  Friðrik Þór bloggar einnig um þetta meinta einelti fjölmiðla í garð trúfélaga.

Morgunblaðið er áróðursblað fyrir ríkiskirkjuna.  Ritstjóri Fréttablaðsins er ákafur stuðningsmaður ríkiskirkju.  Stjórnendur sumra spjallþátta í útvarpi eru frekar ákaflega hlynntir ríkiskirkju en aðrir hafa leyft sér að taka undir málstað þeirra sem vilja aðskilnað.

Eftir stendur að DV hefur staðið sig vel í umfjöllun um biskupsmálið, þrátt fyrir að prestur sitji í stjórn blaðsins og ritstjórinn hati trúleysingja.

Svo leyfir Örn Bárður sér að væla undan einhverju einelti.  Þetta er náttúrulega klikkun, öllu snúið á haus eins og þegar bullan á skólalóðinni fer að væla ef einhver slær til baka.

Framsóknarflokkurinn
Það kemur ekki á óvart að formaður Framsóknarflokksins skrifar grein til varnar ríkiskirkjunni í Morgunblaðið í dag.  Það kemur heldur ekki á óvart að greinin er léleg og skautar hjá kjarna málsins.

Það sem kemur á óvart er að til sé fólk sem styður þennan fáránlega stjórnmálaflokk.

Punktar um trúfélagsskráningu
Það þarf að hafa í huga að í nýjustu tölum eru öll börnin sem sjálfkrafa skrást í ríkiskirkjuna við fæðingu.  Enn á eftir að afgreiða lög um það mál á Alþingi.

Biskupsmálið er vissulega ástæða þess að fólk drífur sig nú í að leiðrétta skráningu en ég held að langflestir af þeim sem hafa skráð sig utan trúfélaga hafi einfaldlega ekki átt neitt erindi í kristið trúfélag í langan tíma.

M.ö.o. hefur trúfélagsskráning hér á landi ekki verið í nokkru samræmi við trúarviðhorf landsmanna.

Kirkjunnar menn eru alveg meðvitaðir um þetta, þess vegna hafa þeir t.d. viljað koma í veg fyrir að þeir sem standa utan trúfélaga greiði lægri skatta sem nemur sóknargjöldum.

Sóknargjöld eru ekki félagsgjöld sem ríkið innheimtir fyrir trúfélög heldur einfaldlega greiðsla sem ríkið greiðir úr sameiginlegum sjóðum landsmanna.

Rafræna trúfélagsskráningin á eftir að verða gríðarleg bylting í þessum málum.  Þetta er mikil framför og ég held að það muni koma á óvart hve margir nota þann kost.

Nú þurfum við bara að fá upplýsingar um trúfélagsskráningu á skattframtal.

Að sjálfsögðu á ríkið að hætta að halda skrá um trúfélagsaðild landsmanna.  Auk þess á ríkið ekki að greiða sóknargjöld til trúfélaga, félögin eiga einfaldlega að halda félagaskrá og innheimta félagsgjöld.  Af hverju á fólk ekki að geta verið skráð í tvö eða fleiri trúfélög ef það kýs?   Hvað kemur það ríkinu við í hvaða trúfélag fólk er skráð?

Ef allir landsmenn skrá sig úr ríkiskirkjunni mun samt fjöldi presta vera á launaskrá ríkisins.  Hver hugsaði eiginlega um hag þjóðarinnar þegar samið var við ríkiskirkjuna?  Björn Bjarnason?

Trúleysingjar ráðast á syrgjendur
Öfgatrúmaðurinn Theódór Norðkvist sagði þetta um trúleysingja í athugasemd hjá Svani Sigurbergssyni fyrir stuttu.

Svo er þetta lið ropandi á öllum bloggsíðum og ég hef jafnvel séð þetta slekti ráðast að fólki í sorg. Ekki skrýtið þó Baldur hafi tekið gengið á beinið og rassskellt þá í bloggpósti nýlega. Enda vældu þeir ekki lítið þegar þeir fengu smjörþefinn af þeirri meðferð sem þeir beita aðra stöðugt. #

Þarna vísar hann í skrif séra Baldurs Kristjánssonar um Vantrú.

Mér þóttu þetta ansi ljótar dylgjur um okkur í Vantrú og þó mörgum þyki sjálfsagt að segja allt slæmt um þá sem ekki trúa á gvuði þykir mér það þreytandi.  Ég spurði Theódór því út í þetta í athugasemd hjá Svani en fékk ekkert svar.

Í dag spurði ég Theódór aftur út í þetta og þá kom loks svar (í þessum umræðum).  Hann segist hafa verið að vísa til athugasemda doctore* í þessari umræðu.  Þar kom Anna Einarsdóttir með innlegg og skrifaði meðal annars:

Til að lifa af barnsmissi er manni nauðsynlegt að trúa því að eitthvað annað og æðra taki við eftir dauðann.  Öðruvísi kemst maður ekki í gegnum sorgina.

doctore rökræddi við Önnu með sínum hætti en það eina sem Theódór Norðkvist les úr því er að hann sé að ráðast að fólki í sorg.

Er ég einn um að þykja athugasemd Önnu Einarsdóttur gríðarlega ósmekkleg og ljót í garð þeirra sem ekki trúa á eftirlíf?  Nú vil ég ekki á nokkurn hátt gera lítið úr barnsmissi, held að fólk geti ekki upplifað nokkuð verra.  Það breytir því ekki að til er fullt af fólki sem trúir ekki á gvuði eða handanlíf.  Það er einfaldlega rangt að nauðsynlegt sé að trúa því að eitthvað "æðra takið við eftir dauðann" svo fólk geti komist í gegnum sorgina.

Þetta viðhorf er því miður alltof algengt hjá trúfólki.  Þó fólk telji sjálft sig ekki geta höndlað sorg án hindurvitna er ekki þar með sagt að aðrir geti það hugsanlega ekki.  Satt að segja hef ég ekkert séð sem bendir til þess að "venjulegt" trúað fólk eigi eitthvað auðveldara með að komast í gengum sorgina heldur en þeir sem ekki trúa.  Frægt er að Charles Darwin missti trú sína endanlega þegar Annie dóttir hans dó og sumir telja það áfall hafi haft mikil áhrif á verk hans.

Reyndar eru til kannanir sem benda til þess að öfgatrúmenn eins og Theódór eigi örlítið auðveldara með að höndla missi náinna enda trúa þeir því *í alvörunni að fólk  fari á betri stað þegar það deyr.  Sú trú gerir það að verkum að þetta fólk getur verið hættulegt umhverfi sínu eins og mörg dæmi eru um.

Þannig að persónulega þykir mér ekkert að því að hinn nafnlausi doctore hafi haldið áfram í þessari tilteknu umræðu þó ég hefði sennilega ekki gert það.  Það var Anna sem tengdi barnmissi í umræðuna án tilefnis og það er fáránlegt að ætlast til þess að þá haldi allir kjafti, sérstaklega þegar um er að ræða rætna fullyrðingu um þá sem ekki trúa á gvuði eða handanlíf.

Er eðlilegt að tala um trúleysingja á þann hátt sem Theódór og Anna gera?  Á fólk bara að taka svona dylgjum þegjandi?  Ég veit það ekki.

Takið einnig eftir að Theódór skrifaði þessi orð um trúleysingja sem ráðast á fólk í sorg - á sama tíma og hann vísar í skrif séra Baldurs Kristjánssonar um Vantrú.  Við erum þetta "slekti", við erum "ropandi á öllum bloggsíðum" og við erum þeir sem ráðast á fólk í sorg.

Svo þykist þessi ómerkingur bara vera að tala um doctore.

*Ég veit ekki hver doctore er, veit bara að hann er ekki í Vantrú.  Mér þykir hann alveg einstaklega slakur málsvari efahyggju og trúleysis.

Mitchell og Webb - samsæri
Þrjú snilldar myndbönd um samsæriskenningar fyrir krypplinga.

<object width="560" height="340"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/QyInKT95eG0?fs=1&hl=en_US"></param><param name="allowFullScreen" value="true"></param><param name="allowscriptaccess" value="always"></param><embed src="http://www.youtube.com/v/QyInKT95eG0?fs=1&hl=en_US" type="application/x-shockwave-flash" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true" width="560" height="340"></embed></object>

<object width="560" height="340"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/uoZ71sj3Kn0?fs=1&hl=en_US"></param><param name="allowFullScreen" value="true"></param><param name="allowscriptaccess" value="always"></param><embed src="http://www.youtube.com/v/uoZ71sj3Kn0?fs=1&hl=en_US" type="application/x-shockwave-flash" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true" width="560" height="340"></embed></object>

<object width="560" height="340"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/P6MOnehCOUw?fs=1&hl=en_US"></param><param name="allowFullScreen" value="true"></param><param name="allowscriptaccess" value="always"></param><embed src="http://www.youtube.com/v/P6MOnehCOUw?fs=1&hl=en_US" type="application/x-shockwave-flash" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true" width="560" height="340"></embed></object>

Skynsemi og eðli hlutanna
En þetta gengur gegn allri skynsemi og eðli hlutanna #

Jón Valur Jensson andmælir Stephen Hawking sem væntanlega mun sjá að sér.

Hmm, hvað annað gengur gegn allir skynsemi og eðli hlutanna? :-)

Er séra Baldur fimm ára?
Ég hef miklu þroskaðri guðsmynd en þið. #

Skrítið þar sem ég hef enga guðsmynd, ég trúi ekki að gvuð sé til yfir höfuð.

Er DV skaðlegt?
Ætlaði að kíkja á dv.is, fékk þessa meldingu.

Nánari skýring.

Meint kynferðisbrot biskups
Enn talar sumir fjölmiðlar um "meint kynferðisbrot" Ólafs Skúlasonar", heyrði þetta t.d. í Síðdegisútvarpi Rásar 2 í gær.

Hvaða bull er þetta?  Er fólk að taka undir með núverandi biskup sem heldur að þetta sé eitthvað vafamál, finnst einhverjum að það þurfi að dæma karlinn fyrir þetta?  Það er ekkert "meint" við kynferðisbrot Ólafs.

Þetta eru ósköp einfaldlega ítrekuð og fjölmörg (alvarleg) kynferðisbrot Ólafs Skúlasonar biskups ríkiskirkjunnar (punktur).

Rafræn trúfélagsskráning
Vantrú segir frá því að nú er hægt að breyta trúfélagsskráningu sinni rafrænt.  Loksins loksins.  Þetta eru frábærar fréttir.

Mynd af mynd
Prófaði tiney og fann þessa áhugaverðu notkun á mynd frá mér

Ég hef aldrei heyrt um þetta tiltekna forrit.

Pressan, Rúv og reffilegur Geir Waage
Pressan spáir í myndatexta við frétta RÚV og spyr hverjum hafi dottið í hug að merkja myndina af honum með þeim hætti.  Pressan vísar nátúrulega ekki á frétt Rúv, hana hefðu þeir fundið með einfaldri leit og þá hefðu þeir séð að textinn er ekki lengur yfir myndinni.

Svarið er að það var ég sem merkti myndina með þeim hætti hér á bloggi mínu, hafði áður birt sömu mynd minna skorna í bloggfærslu.  Myndina tók ég á fyrirlestri Alister McGrath í Hátíðarsal Háskóla Íslands í september 2008.  Fréttastofa RÚV notaði myndina án leyfis.  Fyrsta útgáfa fréttarinnar innihélt þennan texta sem sést ef bendillinn er settur yfir myndina í færslu minni.

Birgir Baldursson vísaði á Pressugreinina á Facebook síðu sinni.

Bílastrákur
Greipur frændi minn er óskaplega hrifinn af bílum og er nær alltaf í bílaleik.

Rómantískt brúðkaup Jónínu og Gunnars
Hvað er rómantískara en að vera með posa í brúðkaupinu sínu?

Séð á Facebook og stolið frá flickmylife.

Þróun háskólanáms og tölvuleikja
Þegar ég var í háskólanámi á árunum 1994-1998 var internetið frekar ungt og fólk eyddi mismiklum tíma hangandi á netinu.  Sumir misstu sig þó aðeins og í tölvunarfræðinni voru fáeinir sem eyddu ótæpum tíma í að spila svokallaða mud leiki í Vetrargarði.  Menn sátu þá inni í tölvustofu tímunum saman og skrópuðu jafnvel í fyrirlestur meðan þeir vöfruðum um sýndarheima í textaformi.  Í einhverjum tilvikum held ég að þetta hafi frestað útskrif um einhver ár.  Svo eyddi fólk miklum tíma á ircinu eða í spjalli með talk, svona eins og gengur og gerist.  Þetta var áður en messenger varð til.

Nú, fáeinum árum síðar* spila nemendur ekki mud í tölvuverinu heldur dunda þeir sér í tölvuleikjum og á Facebook í miðjum fyrirlestri.  Ég verð að játa að ég missti næstum andlitið þegar ég sá að náunginn við hliðina á mér í seinni fyrirlestri dagsins var að spila Eve online (varúð, myndband með hljóði fer í gang) nær allan tímann.

Ég held að mudið hafi verið skárra og ég held að mörgum myndi ganga betur í tímum ef þeir hefðu slökkt á ferðatölvunni.

*Já, ég þjáist af afneitun.  Nei, ég spilaði aldrei mud leiki.  Eyddi aftur á móti alltof miklum tíma á netinu.  Ég ætla svo ekki að rifja upp frásögur af þeim sem eyddi ótæpilegum tíma í að safna klámi inni í Vetrargarði!

Ríkiskirkjuspunavélin komin í gang
Gaman að sjá að ríkiskirkjusinnar eru byrjaðir að stilla saman strengi.  Það er svo flókið að aðskilja ríki og kirkju, kirkjan gerir svo margt gott, prestar eru nauðsynlegir úti á landi, kirkjan þarf að fá allar jarðirnar aftur, það þarf að skoða þetta vel, þetta mun taka langan tíma, fólk muni hugsanlega missa frídaga og breyta þurfi þjóðfánanum.  Bjánalegasti spurninn (sem ákaflega margir trúa) er sá að ríkiskirkjan haldi niðri trúaröfgum í landinu, að án ríkiskirkju muni trúaröfgamenn vaða uppi.  Sú hugmynd stenst enga skoðun.

Allt hugsað til að kæfa málið, hræða fólk frá þessari ákaflega einföldu ákvörðun.

Svo passa klerkar sig á því að láta alltaf eins og engin rök hafi komið fram sem stangast á við þeirra spuna.

Ríki og kirkja verða aðskilin í náinni framtíð.  Ég sé ekki hvað getur komið í veg fyrir það (annað en spilling og pólitísk ítök kirkjunnar auk sterkra tengsla hennar við ákveðna fjölmiðla).

Davíð Þór Jónsson og Jón Magnússon
Skemmtilegt að sjá að Davíð Þór og Jón Magnússon geta sameinast um eitthvað, enda báðir ríkiskirkjumenn.  Svona getur gvuð sameinað ólíklegasta fólk.

Mæli svo með hugleiðingu Kristínar Parísardömu um það sem DÞJ sagði í Kastljósi. Góð ábending.

Leiðari Fréttablaðsins
Mikið er gott að vita hvar Fréttablaðið stendur í málum ríkiskirkjunnar.  Í leiðara blaðsins er ljóst að prestsonurinn mun berjast gegn aðskilnaði ríkis og kirkju þrátt fyrir að meirihluti þjóðarinnar sé og hafi lengi verið fylgjandi því.

Sem rök gegn aðskilnaði telur prestsonurinn upp krossinn í fánanum, sálminn sem við köllum þjóðsöng og kristilega frídaga.  Eins og þessi atriði flækji málið á nokkurn hátt.  Það gera þau ekki.

Auk þess finnst prestsyninum sem ritstýrir Fréttablaðinu sérstök ástæða til að minnast á að þrátt fyrir að undir 80% þjóðarinnar sé í ríkiskirkjunni sé nú um 90% landsmanna í kristnum söfnuðum.  Hann sér aftur á móti enga ástæðu til að nefna að kannanir sýna að rétt rúmlega helmingur þjóðarinnar er kristinn.  Rétt um 45% landsmanna trúir grundvallarkenningu kristinnar trúar - því að Jesús Kristur hafi risið upp.  En ritstjórinn prestsonurinn "gleymir" því.

Djöfull er frábært að tvö af þremur dagblöðum landsins séu áróðursrit ríkiskirkjunnar.  Fowler sé lof fyrir DV.

MT 5.02
Var að uppfæra í útgáfu 5.02 af Movable Type.  Smá handavinna að uppfæra en mér sýnist þetta allt vera komið.

Yndislegt moggaklúður
Óli Gneisti birtir skjáskot af yndislegu klúðri Morgunblaðsins.  Hvernig er þetta eiginlega hægt?

Mogginn er annars búinn að fjarlægja "fréttina".