hvað er að ske?
3-0 fyrir Basel og 30 mínútur liðnar af leiknum. Ég er svo aldeilis hissa.
Hver hefur annars gaman af fótbolta....
Um leið og rafmagnið fór af Breiðholtinu færðist fjör í leikinn í Sviss, Liverpool skoraði þrjú mörk og jafnaði leikinn en náði ekki að bæta einu við og sigra.
Á sama tíma ráfuðum ég og Áróra um og leituðum að kertum og eldfærum. Ég þarf að fjárfesta í vasaljósi í vikunni.
Núna situr Inga María hjá mér og horfir á stubbana, Gyða fór í bíó.
Athugasemdir
Regin - 12/11/02 20:20 #
Ég var akkúrat að fara að skrifa þetta sama. Þetta stress þitt í dag hefur greinilega verið illur fyrirboði!