jólafrí að hefjast
Nú styttist í að þessi vinnudagur endi og jólafrí hefjist. Jólahlaðborð í Perlunni í kvöld, ah ég ætla að éta á mig gat.
Nokkrir pakkar eftir, við reddum því nú um helgina.
Svo á ég bara eftir að kaupa eitthvað handa Gyðu. Held hana langi rosalega mikið í heimabíó :-)
Matti Á. - 22/12/02 11:01 #
Mér finnst einmitt eins og að Gyða sé oft að tala um að hana langi í heimabíó og skjávarpa.
Eða var það kannski ég? :-)
Gyða - 22/12/02 15:24 #
já giskið nú hvort var það!!! :-) Annars benti ástkæri eiginmaðurinn minn á að með heimabíó gætum við notið þess að kúra saman í sófanum sem flokkaðist undir að gera eitthvað saman!! og svo bauð hann mér líka tölvuleik sem hann gæti spilað fyrir mig og ég horft á og átti það víst líka að flokkast undir að gera eitthvað saman :-Þ Ég ætla bara að halda mig við að langa í buxur takk ástin mín :-) Gyða