Örvitinn

boltinn í kvöld

Hrikalega var gott að komast í fótbolta í kvöld. Ég er reyndar alveg að springa úr offitu, bein afleiðing þess að ég er búinn að borða viðbjóð þrjú kvöld í röð. Pizzu á mánudag í vinnunni, aftur í gær hjá Davíð og svo pítu í vinnunni í kvöld. Nefni ekki einu sinni frönsku kartöflurnar með pítunni.

Jæja, núna verður tekið á því.

En djöfull var samt fínt að komast í boltann. Var ég búinn að segja ykkur að ég er snillingur í fótbolta ;-)

Sit nú í sófanum og horfi á upptöku af síðari hálfleik Liverpool og Arsenal. Ekki lítur það vel út eins og er...

Uppfært 0:40
Jæja, 2-2 er ágæt niðurstaða. Ekki hægt að kvarta undan því.

dagbók