Kominn á fætur
Ég lagði mig í næstum fimm tíma. Ætla að reyna að koma sólahringnumí eðlilegt horf. Skelli mér í innibolta í kvöld, næ vonandi að sofna þokkalega snemma.
Ekki laust við að ég sé dáldið dofinn í hausnum. Er að lesa EVE forumin og sjá hvernig staðan er. Ýmis mál hafa komið upp, flest komin í lag núna, nýr patch á morgun.
Ég ætla að einbeita mér dáldið að þessari blessuðu þyngdartölu næstu vikurnar, þetta gengur náttúrulega ekki lengur.
22:40
Fínt að komast í bolta, tók vel á því. Er núna niðri í vinnu að tékka á stöðunni. Sýnist þetta ganga nokkuð vel. Nokkrar villur komið í ljós, sumar verri en aðrar. Búið að laga þetta meira og minna.
Ætla að útbúa test útgáfu af patchernum og drulla mér svo heim.
01:30
Nú er spurning hvort maður geti snúið sólarhrignum við. Gyða, vektu mig fyrir níu.