Plön dagsins
Hrikalega er flott veður. Ég þarf að drífa stelpurnar í föt og senda þær út að leika sér.
Klukkan tíu ætla ég að hringja í tengdamóður mína og plata hana til að passa stelpurnar í smá tíma svo ég geti skotist í ræktina. Spurning um að taka nokkuð góða æfingu í dag. Fara svo jafnvel í pottinn á eftir.
Sæki stelpurnar væntanlega aftur í hádeginu, læt Ingu Maríu leggja sig og reyni að fá Kollu til að leika sér úti.
Í kvöld er það svo Liverpool-Köln á einhverjum sportbar. Spurning hvort ég plata ekki Stebba mág til að koma með mér, það fékk ekki mikinn hljómgrunn þegar ég stakk upp á því við strákana á laugardagskvöldið að við myndum kíkja á þennan leik. Ef allt annað bregst fer ég bara einn.
Arnaldur - 16/07/03 15:26 #
Hmmm, þetta er freistandi. Mamma Kötu tók reyndar upp á því að eiga afmæli í dag og ég er víst boðaður í veislu. Veislan byrjan kl 18. Þar með er ég úr leik :(
Kem með þér á næsta leik, tökum þá gríðarlega á ölinu...
kv, A.
Regin - 16/07/03 16:20 #
Ég er með. Hringdu í mig í síma 8207374. Er það ekki players?