Helgin
Ég er dálítið þreyttur eftir helgina.
Vorum með matarboð á laugardagskvöld og drukkum áfengi fram á nótt. Stelpurnar voru heima, Áróra Ósk passaði Kollu, þær horfðu saman á sjónvarpið í sjónvarpsstofunni, Inga María sofnaði áður en gestir mættu. Gekk afar vel. Það var ágætt fjör í fólki og fín stemming í boðinu. Ég tók nokkrar myndir og n.b. Eva er á einhverjum ;-) Set samt ekkert alltof margar myndir úr boðinu hérna, fólk er eitthvað svo áberandi ölvað á mörgum þeirra :-)
Ég var í meðallagi þunnur í dag, horfði á Liverpool leikinn með Stebba í nýja húsinu, þau eru semsagt að koma sér fyrir. Leikurinn fór ekki vel en engin ástæða til að örvænta strax, mér lýst vel á nýju mennina.
Eva - 30/08/04 07:33 #
Takk fyrir að setja mynd af mér inn, mér líður strax betur :) Takk fyrir frábært kvöld Gyða og Matti og frábæran mat.
Sirry - 30/08/04 08:30 #
Takk fyrir kvöldið það var frábært að vanda þrátt fyrir að sumir væru syfjaðari en aðrir. Vona að ég verði ekki rekin úr klubbnum :) Maturinn var rosalega góður og ísinn vel valin hjá þér Gyða.