bah
Það er satt sem yfirmaður minn sagði þegar við ræddum um það hvenær ég gæti hætt í bankanum að þegar maður er að fara að skipta um vinnu er maður í raun farinn í huganum þó tæpur mánuður sé í skiptin.
Er syfjaður, svaf samt meira en flestar næstur.
Er að hlusta á Modest Mouse, Wilco, The Thrills, Hjálma og Saybia þessa dagana. Reyndar bara eitt lag með síðasta bandinu, ballöðu sem ég sá á popptíví og féll fyrir.
Matarklúbbur á laugardag, hvað á ég að elda? Er ekki málið að gera eitthvað nýtt? Hef ekki hugmynd. Fær maður kanínukjöt í búðum hér?
Athugasemdir
Sirrý - 06/04/05 12:05 #
Er það ekki bara spurning um að elda eitthvað rosalega gott :C)
Hlakka alla vega til þess að koma.