Fréttnæmt
Horfði á þrjá fyrstu þættina af sjónvarpsseríunni Lost í gærkvöldi. Líst vel á, ætla að reyna að sjá restina - það er víst eitthvað endurtekið annað kvöld, þarf að taka það upp. Búið að sameina Survivor, ER og fleiri þemu í einn þátt. En þetta er ekki fréttnæmt.
Fór í ræktina í hádeginu, það er heldur ekki fréttnæmt.
Það sem er fréttnæmt er að annað kvöld verð ég sjálfskipaður bílstjóri meðan vinir mínir detta í það, keyri hópinn hingað og þangað um landið. Ég nenni ekki að detta í það, langar ekki til þess. Auk þess er bjór fitandi :-)
Held ég sleppi því að fá mér í glas á næstunni. Af hverju? Vegna þess að ég get það.
Athugasemdir
börkur - 16/05/05 11:51 #
skál fyrir því!