Örvitinn

Tjald

Keyptum okkur tjald í Hagkaup í gær. Sex manna tjald á fjórtán og níu.

Tjölduðum svo í garðinum þegar við komum heim til að æfa okkur. Ég og Gyða byrjuðum nokkuð brött en þurftum að játa okkur sigruð að lokum, leiðbeiningarnar voru skelfilegar. Ég hringdi í Jónu Dóru og hún og Ásdís Birta röltu í heimsókn. Jóna Dóra og Óttar eignuðust svona tjald í fyrra og hún kann á þetta. Það reyndist ekki stórmál að tjalda og við reddum okkur sjálf næst :-) Tjaldið er rúmgott og mér sýnist við öll fimm komast vel fyrir í stóra svefnrýminu. Getum þá hugsanlega sleppt því að koma minna svefnrýminu fyrir.

Svo er bara að vona að veður verði þokkalegt einhversstaðar á landinu í næstu viku.

græjur