Í Öskjuhlíð
Í mars 2003 settumst við á æfingabekk í Öskjuhlíð og tókum mynd, endurtókum leikinn á sama bekk í dag .
Viti menn, fólk breytist eitthvað örlítið.
Áróra Ósk var ekki með í dag, var hjá pabba sínum. Kemur til okkar í kvöld.
Elvar - 25/07/05 00:20 #
Já, örlítið á ári stundum, stundum örlítið meira en örlítið.
http://zonezero.com/magazine/essays/diegotime/time.html
Þú hefur alla burði til að framkvæma svona tilraun :)
Matti - 25/07/05 00:28 #
Jamm, var búinn að sjá þetta. Hrikalega flott dæmi.
Það næsta sem ég kemst þessu eru myndasíður Kollu og Ingu Maríu, þar sem ég set inn eina mynd á mánuði. Þó ekki uppstillt eins og á þessum vef, heldur vel ég bara einhverja mynd af þeim eftirá.
Svo var einhver gaur sem tekur andlitsmynd af sér á hverjum degi og póstar á netið, það er helvíti flott dæmi en ég nenni ekki að leita að því núna :-)