Djöfull er kalt
Óskaplega er kalt hér, ég sveipa mig teppi í sjónvarpsstofunni. Ekki ætla ég samt að hækka í ofnum því þá verður of heitt þegar hlýnar.
En hvort á maður að bjóða gestum upp á vetrar- eða sumarmat á svona degi? Ég var eitthvað að spá í að fara að kaupa mér nýtt grill en það er ekki hægt að kaupa sér grill í svona kulda, það er bara ekki við hæfi.
Aftur á móti ætla ég að kíkja í Ásmundarsafn með fjölskylduna, það er við hæfi.