Örvitinn

Snoðaður

Ég var djarfur í gær og bað rakarann að stilla rakvélina á 6 en ekki 9 þegar hann snoðaði á mér kollinn. Einn dag mun ég kaupa mér græju og gera þetta sjálfur, en þangað til er þægilegt að rölta á jarðhæðina hér á Laugavegi 178 og fá rakara til að sjá um þetta fyrir fimmtán hundruð krónur.

Gyða segir að ég líti út eins og útkastari! Held það hafi reyndar eitthvað með peysuna að gera líka.

dagbók
Athugasemdir

Árni Þór - 27/09/06 11:25 #

Ég skellti mér í snoðun í gær líka. Hefur legið eitthvað í loftinu. Það er töff að vera snoðaður.

Matti - 27/09/06 11:37 #

Já, ég finn vel hvað maður verður glaður svona snoðaður.

snoðaður og glottandi eins og fífl

Jón Magnús - 27/09/06 15:15 #

Kíví-hausar!

Einar Hreiðarsson - 28/09/06 18:55 #

tips: ég keypti góða hleðsluvél(Panasonic er-206) á 4000 kr í Elko borgar sig á 2-3 klippingum