Helgi í bústað
Fórum í bústað á föstudagskvöld og komum heim rétt í þessu. Lögðum af stað ansi seint á föstudag þar sem Trackwell var að fagna tíu ára afmæli það kvöld auk þess sem Gyða var upptekin í vinnu. Renndum í hlað í bústað um tíu.
Veðrið var hundleiðinlegt og við fórum ekki úr húsi. Ég brunaði þó í Borgarnes í gær og horfði á Liverpool leikinn og verslaði í kvöldmatinn að því loknu. Höfðum smá veislu í kvöldmatinn í gær og svo að sjálfsögðu eggjaköku í hádeginu í dag.
Sá baksíðu Fréttablaðsins í dag. Mikið leiðast mér endurtekningar.
Árni Þór - 16/10/06 01:33 #
Ómerkilegt að tilkynna að hann sé hættur að tjá sig um trúmál á síðunni sinni og standast það svo ekki að senda ykkur eina sneið í viðbót á baksíðu Fréttablaðsins...
Eða eins og hann segir sjálfur..
Ég hef því ákveðið að tjá mig ekki framar um trúmál opinberlega. Í stað þess að auglýsa trú mína og afsaka ætla ég framvegis að einbeita mér að því að rækta hana.
Matti - 16/10/06 08:12 #
Ekki ætlum við að svara í þetta skipti. Vonandi sér annað gott fólk um það.