Örvitinn

Komin úr bústað

Við vorum að koma heim úr bústað. Skelltum okkur úr bænum seinnipartinn í fyrradag. Tengdaforeldrar mínir voru fyrir í bústaðnum, Stebbi og Margrétt mættu seinnipartinn í gær, en þau komu frá London fyrr um daginn.

Fórum út að borða í fyrrakvöld og svo var hamborgarahryggur með meðlæti í gærkvöldi. Skelltum okkur í smá göngutúr í gærdag en annars var þetta letilíf.

Ég tók nokkrar myndir, á eftir að bæta helling hér inn.

Ég dunda mér nú við að skoða viðbrögð við bingóinu, af nógu að taka.

dagbók