Einstæður
Gyða fór með Áróru Ósk og nokkrar vinkonur hennar í sumarbústað í tilefni fimmtán ára afmælis Áróru sem er á morgun. Gyða er verður á staðnum ásamt fimm unglingsstelpum. Ætlar að loka sig inni í herbergi, lesa bækur og horfa á kvikmyndir í tölvunni meðan stelpurnar dunda sér. Þær fá semsagt ekki að fara eftirlitslausar í bústaðinn.
Ég er því einn með Kolla og Ingu Maríu í nótt. Á morgun bætist Ásdís Birta í hópinn, við ætlum að passa hana eftir hádegi.
Þetta er svosem rólegt. Stelpurnar eru að dunda sér núna, ég horfi á fótbolta. Stóra spurningin er hvað ég hef í kvöldmatinn handa okkur :-)
Athugasemdir
Sirrý - 02/06/07 20:14 #
Umm en Gyða heppinn :C) Vonandi heppnast afmælið vel.