Svefn
Ég sofnaði þegar ég var að svæfa Kollu klukkan hálf níu í gærkvöldi. Þegar ég rumskaði ákvað ég að sofa áfram í stað þess að fara niður að glápa á sjónvarp, skellti mér því yfir í mitt rúm og steinsofnaði.
Var því eiginlega vaknaður klukkan sex í morgun en dottaði til sjö.
Ég átti þennan svefn inni - hef sofið of lítið undanfarið.