Jólasveinahúfan gleymdist
Í öllu stressinu í morgun* gleymdi ég að senda Kollu með jólasveinahúfuna. Af hverju er ég alltaf að klúðra þessum litlu hlutum sem skipta máli?
Vonandi er hún ekki mjög svekkt.
*Gyða er í prófi í HÍ þessa stundina.
Jólasveinahúfan er á morgun þegar hennar bekkur á að syngja fyrir alla hina á jólaballinu. :-)
Æi hvað það er gott - ég var viss um að ég hefði klúðrað deginum hennar :-)
hvernig gekk prófið Gyða ?
Prófið gekk bara vel. Maður veit náttúrulega ekki hvaða punkta vantaði í svörin en ég held það hafi bara gengið vel :-)
Gott að heyra Gyða.
Gleymdist húfan nokkuð í dag ?
Kolla fór með jólasveinahúfu í dag.