Nýr sófi
Fengum nýjan sófa sendan heim í kvöld. Þurfum að taka fætur undan til að koma honum inn um garðhurðina og það var dálítið vesen að setja þá aftur undir. En nú er hann kominn á sinn stað. Kolla prófaði hann vel áðan. Smellið á myndina til að sjá stærri útgáfu.
Sófann fengum við hjá Davíð í Bóhemia. Davíð þarf að uppfæra heimasíðuna en hann er með fullt af flottum vörum. Fyrir tveimur árum fengum við þennan sófa í sjónvarpsstofuna hjá honum.
Athugasemdir
Sirrý - 23/12/07 02:06 #
Til hamingju með nýja sófann. Fengu þið ykkur stóla með eða ? Flott mynd af kollu í stólnum hef alltaf gaman af svona :C)
Gyða - 23/12/07 09:43 #
Takk takk Stólarnir koma einhverntíman eftir áramót voru ekki til á lager svona stuttu fyrir jól. En þeir munu sem sagt koma líka.