Punktar
Ég eldaði tandori kjúkling í gær. Mér fannst þessi eldamennska eiginlega vera dagsverk en í raun vannst verkið í tveimur stuttum lotum. Í gærmorgun setti ég úrbeinuð kjúklingalæri í marineringu (jógúrt, engifer, laukur, tandori masala, garam masala, salt, lime) og grillaði í gærkvöldi. Grillaði líka nan brauð eftir uppskrift úr grillblaði Gestgjafans. Afskaplega gott og ég borðaði yfir mig. Mér finnst úrbeinuð kjúklingalæri betri en kjúklingabringur. Eini gallinn er að kjötið er dálítið tætingslegt og því flóknara að grilla það, hætt er við því að bitarnir fari í sundur.
Við fórum ekki í kröfugöngu. Yfirgáfum ekki Bakkaselið í gær. Gyða fór reyndar í göngutúr í Heiðmörk með móður sinni. Kannski voru þær með dólgslæti þar, ég veit það ekki.
Ég tók hjálpardekkin af hjólinu hennar Ingu Maríu og hljóp svo með henni fram og til baka á stéttinni fyrir ofan hús. Hún er alveg að ná þessu. Hún er ekkert rosalega þolinmóð og vildi hætta nokkrum sinnum en pabbi hennar plataði hana til að halda áfram "nokkrar ferðir í viðbót". Það var óskaplega gaman þegar ég gat sleppt henni í smá stund og hún hjólaði sjálf. Hún nær tökum á þessu næst.
Ég lokaði aðgang mínum að Facebook í fyrradag. Var farinn að standa mig að því að fylla út ótal skoðanakannanir um allan andskotann og komst að því að meiri tímaeyðsla er ekki til.
Þegar Inga María hitti Lindu vinkonu sína í gær var Linda á leiðinni í sjoppuna til að kaupa nammi. Inga María fékk hundrað krónur og fór með henni. Stelpan er nú ekki vanari verslunarferðum en svo að hún pantaði sér bragðaref sem kostaði um fimm hundruð krónur og mamma Lindu þurfti að mæta á staðinn og redda málum. Stundum fattar maður ekki að börn þurfa að læra allt, líka að versla í sjoppu. Þau eru vön því að foreldrar geti borgað (en ekki að fá hvað sem er).
Kalli - 05/05/08 08:30 #
Þetta Facebook (eða var það arsebook?) er að stórum hluta rugl. Hef sjálfur pælt í að loka á mína en endaði með að henda út nánast öllum apps nema Scrabulous og svara ekki boðum um fleiri.
Virkar ágætlega. Hins vegar hef ég mjög lítið að gera á Facebook nema spila smá Scrabble. Virkar vel fyrir mig.