Kolla níu ára
Kolla er níu ára í dag.
Hún fékk enga afmælisgjöf í morgun, á eftir að velja hana. Það er ekki mjög auðvelt í þetta skipti þar sem hún fékk allt sem var á óskalistanum í jólagjöf.
Förum út að borða í kvöld, Kolla sér um að velja veitingastaðinn. Afmælisboðin verða næsta sunnudag.
Athugasemdir
hildigunnur - 06/01/09 09:13 #
Til hamingju með skottuna :)
sirry - 06/01/09 17:25 #
Innilega til hamingju með skottuna. Arnari langaði einmitt ekki í neitt í afmælisgjöf svo hann fékk pening þægilegt :D