Fór í ræktina - tók ekki á því
Kíkti í ræktina í fyrsta skipti í langan tíma eftir vinnu. Er orðinn góður af októberkveisunni.
Hitaði upp í tíu mínútur, tók svo brjóst og bak (niðurtog) og var að leita að næsta tæki þegar ég rakst á Axel. Við spjölluðum saman um fótbolta og Liverpool í góðan tíma. Þegar því spjalli var lokið fannst mér tímabært að hita mig niður, þannig að ég fór á Orbitrek tæki í tíu mínútur og gerði ekkert miklu meira í dag.
Næst verð ég aðeins duglegri.