Örvitinn

Fjörutíu

Ég varð fertugur í dag.

Sjálfsmynd
Spurning hvort ég eigi að raka mig í tilefni dagsins
Úff!

Ég ætla ekki að halda sérstaklega upp á þennan stóráfanga. Er eldhús- og stofulaus um þessar mundir og á ekki gott með að taka á móti gestum. Dunda mér í tölvunni, skoða afmæliskveðjur á Facebook (takk fyrir þær), búinn að stilla upp Fantasy liðinu* og horfi á leik Liverpool og Everton á eftir. Fer í tveggja ára afmæli Birtu Maríu í dag og í kvöld ætlum við út að borða á Austur-Indíafjelaginu. Ég ætla að fá mér bæði hvítvín og bjór.

Í staðin fyrir að halda upp á fertugsafmæli ætla ég að hafa smá veislu í vor þegar ég útskrifast úr meistaranámi. Þá mun ég eiga bæði eldhús og stofu og svo verður líka örlítið minna skammdegi þá.

* Fyrir þessa umferð var ég efstur á Íslandi og í 15. sæti í heiminum.

dagbók
Athugasemdir

Erna Magnúsdóttir - 23/11/13 12:32 #

Til hamingju með afmælið Matti!

Matti - 23/11/13 13:49 #

Takk takk :-)