Punktar, tepokar eða hvað þið viljið kalla það
Hér skal bloggað í ótengdum punktum.
- Ég er laus við spelku og hækjur. Brotið var að öllum líkindum gamalt og ég er miklu betri þegar bólgan er farin, finn varla fyrir neinu (en einhverju þó). Það er óskapegur léttir að vera laus við þetta, ég hefði varla höndlað gifs og hækjur í einhverjar vikur í viðbót! Mæli með því að fólk komi sér í almennilegt líkamsástand áður en það tekur upp á því að þurfa hækjur. Tek því rólega á næstunni en kemst vonandi í fótbolta bráðlega.
- Við hjónin fórum út að borða á Rub23 um helgina með Kötu og Arnaldi, fengum afskaplega fínan mat. Ekki nóg með það heldur gistum við hjónin á hóteli, það var nú meiri lúxusinn á Hótel Reykjavík centrum, toppað með flottum morgunverði. Þurfum að gera þetta oftar.
- Ég missti af bardaganum hans Gunnars en við sáum úrslitin á netinu. Ég er ekki mótfallinn bardagaíþróttum en þegar ég horfði á bardagann á Vísi í gær fór dálítið um mig þegar útlensku þulirnir lýstu olnbogaskotum Gunnars í höfuð andstæðings af miklum ákafa og fögnuði. Í boxi væri búið að stöðva bardagann og þykja hnefaleikar þó frekar ofbeldisfull íþrótt. Ég vil samt ekki banna þetta og Gunnar er afreksmaður.
- Auðvitað getur fólk meitt sig í öðrum íþróttum eins og fótbolta. Í þeim flestum fá leikmenn þó bann, jafnvel ævilangt, ef þeir ganga í skrokk á andstæðingnum. Jafnvel eru dæmi um að leikmenn hafi fengið fangelsisdóm fyrir ofbeldi á velli.
- Tengdist 4G kerfi Símans í fyrsta skipti í miðbænum um helgina. 4G kerfið virðist ekki ná langt út fyrir miðbæinn, a.m.k. næ ég ekki að tengjast því í vinnunni efst á Laugavegi. Í miðbænum var ég að ná um 40-50Mbs niðurhali skv. Speedtest appinu. Það er ansi gott. Ég hlakka til að fá 4G samband í bústaðinn í Borgarfirði en gæti þurft að bíða eftir því.
- Fárið útaf Má seðlabankastjóra er glórulaust að mínu mati. Ég hefði fyrir löngu sagt þjóðinni að éta það sem úti frýs og væri farinn aftur til Sviss ef ég væri hann.
- Facebook er dauði og djöfull. Blogg eru kúl.
Athugasemdir
pallih - 14/03/14 08:27 #
Skrifa þetta á 4g sambandi í strætó, efst á Laugavegi. Það er þá komið.