Örvitinn

Óða fólkið á Twitter

óða fólkið
Dæmi um tengingar
Ég fann ekki upp á frasanum „óða fólkið“, þetta er útúrsnúningur á ruglinu um „góða fólkið“ sem þróaðist yfir í „vók“. „Óða fólkið“ er samt frábært yfir fólkið sem hér er fjallað um!

Ég dundaði mér við það, svona meðan ég var ekki að gera annað í fríinu á Spáni um daginn, að fara yfir helstu íslensku nasistana, rasistana og fylgjendur þeirra á Twitter og kortleggja tengslin. Þetta er óskaplega lítil og einföld vefsíða sem notar d3.js til að reikna út staðsetningu punkta í neti út frá tengingum.

Í þessari fyrstu útgáfu harðkóða ég liti á nóðurnar, frá dekkstu rasistum yfir í bláa fólkið sem getur talið sér trú um að það sé alls ekki rasistar, bara að spyrja spurninga og fylgja rasistum af forvitni! Ég byrjaði einfaldlega á nasistunum sem ég vissi af og fór svo yfir fylgjendur þeirra og þá sem þeir fylgja. Auk þess skoðaði ég innlegg og setti í sumum tilvikum á listann þá sem voru að dreifa efni eða kommenta hjá þeim sem fyrir voru. Að sjálfsögðu er það að lokum alltaf huglægt mat hver endar inni og ekki. Finnst þér vanta einhvern á listann? Láttu vita í athugasemd. Líka ef þér finnst einhver vera þarna að ósekju. Ertu á listanum en það vantar einhverjar tengingar? Sendu mér endilega yfirlit af follow og followers listunum og ég skal uppfæra síðuna.

Einn sturlaðasti gaurinn á Twitter var byrjaður að lesa mikið úr hluta af vefslóðinni en þetta er einfaldlega staðsett þarna því þetta er í greinaflokknum. Kíkið endilega á greinarnar til að sjá hvað þar er í gangi.

Gunnar er galinn
Ég blokkaði Gunnar vegna þess að hann fékk furðulegt þráhyggjukast um það að ég væri sérlegur talsmaður ofbeldis (geng nasistum!) eftir að ég benti á að hann er kumpánlegur við þá.

Ég setti two "teasera" inn á Twitter og hef haft gaman að því að fylgjast með hugleiðingum óða fólksins. Reyndar er sumt sem þar hefur verið sagt mjög langt frá því að vera í lagi og sumt augljóslega nóg til að kæra fólk fyrir en látum það liggja milli hluta. Arnar Arinbjarnarson er aumingi og verður alltaf lúser hvort eð er. Fólk semsagt sá bara "preview" en las heilmikið úr því, sem er svosem skiljanlegt.

Arnar Arinbjarnarson er fífl
Arnar er gott dæmi um mann sem mátti alls ekki við því að fá covid ítrekað

Stóra spurningin er auðvitað; „af hverju er ég að gera þetta“. Svarið er, „af því bara“. Af hverju ekki. Ég var í fríi, hafði tíma til að dunda mér. Hef verið aðeins of mikið að pæla í þessu síðustu tvö ár og oft spáð í hvort ekki væri hægt að taka þetta saman.

Aðrar spurningar:

„Er hann ekki með vinnu“

Jú, og ég var í fríi.

„Er hann með þráhyggju“

Já, kannski! Ég hef a.m.k. eytt of mikilli orku í heimsku rasistana á Twitter. Samt ekki nærri nálægt því eins mikilli og þessir fábjánar eyða í rasisma og almenna fordóma. Mikið af þessu liði skrifar tugi tvíta á dag, grafa upp gögn sem þeir misstúlka og halda uppi vikulegum þáttum um hvað vók er skelfilegt. Sjúkleg þráhyggja!

„Er hann eitthvað geðveikur?

Ég held ekki!

Athugasemdir

Matti - 30/11/25 18:51 #

Fyrsta "fórnarlambið"?

>

Páll Óskar - 11/12/25 21:38 #

Mjög stoltur af þér að nenna að standa í þessu. Gætirðu samt bætt við Zíonistum á nasistakortið svo ég viti hverja þarf á alvöru að blokka? Bláa Öndin og svoleiðis

Matti - 12/12/25 14:07 #

Það væri nú kurteisi að koma fram undir réttu nafni og með gilt póstfang, en jæja!

Ég sé að ég merkti bara tvo sem zíonista en gæti sett mun fleiri, t.d. Örn Bárð Arnarson. Skal reyna að muna að setja það.

Andrés Magnússon og gervifígúrurnar hans eiga hugsanlega heima á listanum, þarf að geta tengt við einhverja sem eru á listanum nú þegar.

Matti - 17/12/25 11:22 #

Annað "fórnarlamb"?

nafnlaus nasistaskítur - 31/12/25 20:34 #

Gleðilegt nýtt ár Matti minn!

Matti - 01/01/26 12:45 #

Ég breytti nafninu á síðasta innleggi í nafnlaus nasistaskítur. Það sem nasistinn setti inn var vísun í nauðgun.

Sem margir nasistar virðast hafa á heilanum og er satt að segja ekki vísbending um að þeir séu í andlegu jafnvægi.




ath. póstfangið birtist ekki á síðunni

má sleppa

(næstum öll html tög virka, einnig er hægt að nota Markdown rithátt)