Örvitinn

Ellefu ljótir og asnalegir nasistar

norðanátt fær ekki að vera með í þetta skipti

Nasistinn LoginTerm er ekki með vegna þess að ég hef áður tekið hann fyrir en ekki gleyma honum, sama gildir um nasistann og barnaperrann svennipopp.

Ég veit að einhverjum finnst það ýkt að kalla sumt af óða fólkinu á Twitter nasista og aðrir hafa dylgjað um að ég kalli alla sem eru ósammála mér nasista. Það er auðvitað kjaftæði, ég vil þvert á móti halda því fram að ég sé alltof ragur við að kalla fólk nasista og geri það ekki nema mér finnist ekkert annað koma til greina, margir rauðir á kortinu ættu líklega að vera dökkbrúnir (og sumir verða það að lokum).

Hvað um það, hér koma ellefu dæmi af 78 sem eru dökkbrúnir á grafinu. Helsti vandinn við þessa samantekt var að velja bara ellefu, ég var strax kominn með rúmlega 30 nöfn þó ég gerði mitt besta þannig að margir fleiri komu til greina á þennan lista, en komast á þann næsta.

hh88bbc

hh88bbc, áður hh881076889, hefur ekki verið virkur í nokkurn tíma en það er ágætt að byrja samantektina á fígúru sem kennir sig við Hitler (HH augljóslega og 88 er líka vísun í HH, nei, þetta er ekki gáfulegt). Það þarf varla að deila um að þessi fígúra er nasisti. Góðu fréttirnar er að hann hefur ekki verið virkur á Twitter síðan í maí í fyrra. Sem er áhugaverð tímasetning en kannski meira um það síðar.

UserAncient45

UserAncient45 vitnar í Goebbels, er augljóslega rasisti og upptekinn af því að vernda hvíta kynstofninn.

Nei og nei. ást fyrir eigin kynstofni er að öllu leyti nátturuleg. Þegar þú segir blandast, vegna þess að þú veist það vel sjálfur að stofnarnir í Afríku og Asíu eru ekki að blandast, þannig þú meinar aðeins Hvít blöndun ekki satt? #

ég meina ég er sjálfur rasisti en er að spyrja fyrir þá sem óttast þetta orð #

noticerofthejew

Notendanafið vísar til þeirra sem taka eftir áhrifum gyðinga út um allt og er þekkt stef í heimi nýnasista. Virðist afar hugfanginn af Nick Fuentes. Skrifar lítið en tjáir sig með því að dreifa tvítum annarra.

SchmittMoneyM

Í umræðum um að Ísland hefði ekki hleypt gyðingum inn i landið fyrir síðari heimsstyrjöld:

Hrikalegt... ef ekki hreinlega sorglegt! Við hleyptum þeim ekki hingað inn? Þvilíkur glæpur! #

Sítrona

Sítróna er undarlega upptekin af því að afneita helförinni, og deilir reglulega tvítum um efnið, sem er óneitanlega mjög súr hegðun.

Villi

Villi er ekki nafnlaus og birtir mynd af sér í prófíl þar sem hann kynnir sig með orðunum:

Íslendingur sem er orðinn þreyttur á útlendingum.

Villi er ekki bara grófur rasisti heldur deilir líka efni frá nýnasistum. Villi er nasisti.

Flóttapakk nei takk

Flóttapakk nei takk aðgangurinn, „Burtu með þá alla, konur börn og karla“ í prófíltexta. Var nokkuð virkur en virðist í einhverjum dvala. Helsti kostur þessa aðgangs er að fylgjendur hans stimpla sig mjög rækilega, geta ekki haldið því fram að þeir viti ekki hvaða skoðunum þeir gerðust áskrifendur að.

stillfootling

Góðkunningi bloggsins var áður footler420. Nasisti og óskaplega stoltur af því.

theudanaz

Þeudanaz ᛟ „Þjóðernissinni“ segir hann. Nasisti er raunin eins og fjölmörg dæmi eins og þetta hér að ofan sýna.

Shulman of Shamhuth

Æi, það þarf ekki að eyða orku í þetta! Þessi hefur verið afar duglegur að dreifa myndum og myndböndum af Hitler.

Addi

Addi / arnar03 kynnir sig með orðunum „white guy, mass deportations“

Hvað svo?

Ekkert svosem, annað en að það er áhugavert hverjir eru áskrifendur að skoðunum nasista því það segir mjög mikið um þá. Mín skoðun er einföld, sá sem fylgir eða á samskiptum við marga svona nasista er nasisti. Þannig blasir við að draga þá ályktun að Norræna karlmennskan og Sverrir félagi hans séu nasistar. Meira um þá síðar.

Viðbót (11.02)

fylgjendur ellefu nasista
Allir 123 fylgjendur þessa 11 nasista
Hvað má lesa úr þessari mynd? Fyrst og fremst að þetta er frekar þéttur hópur og svo hitt að það dugar mér í þessar "flokkun" að ef fólk fylgir nasista er það ekki blátt!

Athugasemdir

Rúnar Karl Ingólfsson - 11/02/26 01:42 #

Mætti alveg skera út þann óvirka og skrifa greinina: Tíu litlir nasistrákar

Matti - 11/02/26 09:46 #

Það var upphaflega hugmyndin en ég vildi ekki hvetja þetta lið, og liðið í kringum það, til að draga fram augljósu vísunina. Því bætti ég einum við!

Spegillinn - 12/02/26 19:37 #

Ef ég tek saman og bendi á hluti sem þú segir sem haldast í hendur við nasista. Fæ ég að komast á þennan lista?

Matti - 12/02/26 20:05 #

„...sem haldast í hendur við nasista“

Hér birti ég myndir af aðgöngum sem skreyta sig með hakakrossi og mæra Hitler og svar þitt er að reyna að tengja eitthvað með langsóttum hætti við Hitler? Skil ég þig rétt?

Bentu endilega á eitthvað frá mér sem þér finnst ætti heima á listanum.

Sindri - 16/02/26 20:33 #

Takk fyrir að taka þetta saman - þarft verk.

Stillfootling - 24/02/26 00:17 #

Takk fyrir að benda mér á allar þessar frens :)

Er að spá í að setja aftur gömlu prófílpic af gamla prófílnum. Hvað segirðu?

Matti - 24/02/26 13:25 #

Mér er alveg óskaplega sama, tengdu þig endilega við alla hina nasistana, myndið vinarbönd, haldið veislu, drekkið kool-aid.

Stillfootling - 24/02/26 22:20 #

<3

Stillfootling - 24/02/26 22:23 #

Ætlarðu að vera með?

Spyrjandi - 10/03/26 21:32 #

Sæll Matthías, sagðir þú þetta í raun og veru? Ef svo, hvert er samhengið? https://x.com/HolyThunderKing/status/2031327961056493855

Matti - 11/03/26 11:06 #

Nei, þetta er auðvitað fölsun. Það er auðveldlega hægt að skoða tvítin mín og reply.

Hvað er eiginlega að fólki? Af hverju eru þessir nasistar svona sjúklega geðveikir?

https://x.com/orvitinn/status/2031671799574843831

Þetta er tvítið mitt.




ath. póstfangið birtist ekki á síðunni

má sleppa

(næstum öll html tög virka, einnig er hægt að nota Markdown rithátt)