Örvitinn

leti leti leti

Eins og venjan er á fimmtudögum svaf ég yfir mig. Vaknaði samt um sjö þar sem Kolla sá enga ástæðu til að sofa lengur. Ég var þó ekkert að flýta mér og slakaði á heima til rúmlega átta.
Hjólaði þá í World Class og skellti mér í sturtu og rakaði mig. Jamm, það er rétt, þetta var líkamsrækt dagsins :)

Hvað segið þið annars gott í dag?

dagbók
Athugasemdir

regin - 08/08/02 10:38 #

Ég segi allt ágætt. Þetta var aldeilis líkamsrækt hjá þér í morgun, þú hefur kannski brennt svona 10 kal á því að raka þig :-) Hvernig er annars skipulagið fyrir laugardag, eitthvað gjafa samkurl?

Matti - 08/08/02 10:42 #

Það er nú lítið skipulag.. en við þurfum að slá saman í gjöf, það er engin spurning.

Eiki er í bænum held ég, spurning um að tékka á honum líka. Óli mætir ekki, er eitthvað að bassast.

Debuty - 09/08/02 10:21 #

...ég vil nú taka það fram að ég mætti!!! Púlaði á stigvélinni í 30 mínútur...........