dagur tvö
Annar dagur í átaki (innan átaks). Ekki byrjaði hann vel, þyngdartala dagsins hærri en ég hefði viljað. Át alltof mikið í gærkvöldi af kjúkling, borðaði eina og hálfa bringu og slatta af frönskum. Já, ég skammast mín :-P Gyða, þú skammtar á diskinn í kvöld.
Mætti í World Class hálf níu í morgun og hljóp rúmlega fimm kílómetra. Hljóp semsagt í 30 mínútur, var kominn fimm kílómetra á 29 mínútum (í rauninni 27 þar sem fyrstu tvær mínúturnar voru bara tölt meðan ég var að stilla tækið og koma mér af stað)
Helvíti fínt að hlaupa svona, skil ekki af hverju ég er latur við þetta. Eftir hlaup fór ég svo upp og tók nokkrar magaæfingar. Svitinn lak bókstaflega af mér.