Örvitinn

tveggja turna tal

Af hverju "tveggja turna tal" ? Af hverju ekki bara "tveir turnar" ?

Hvað um það, þetta er ævintýri, fínt ævintýri. Áróra skemmti sér mjög vel. Var ekki jafn hrædd og síðast og ég slapp alveg við sár í þetta skipti.

Á slashdot fjalla menn um myndina. Óhætt að segja að það séu skiptar skoðanir um ágæti hennar. Gagnrýnendur eru flestir jákvæðir.

Núna sit ég hér og horfi á síðari hálfleik í leik kvöldsins en Gyða tók hann upp fyrir mig. 3-2 fyrir Liverpool þegar korter er eftir.

dagbók kvikmyndir
Athugasemdir

Gyða - 19/12/02 10:02 #

mmm þér datt ekki í hug að fara að sofa þegar þú komst heim eftir two towers!!! og hvernig fór svo leikurinn??

Matti Á. - 19/12/02 13:28 #

Fara að sofa án þess að klára að horfa á leikinn.. það er ekki í lagi með þig :-)

Liverpool vann 4-3, sigurmark skorað eftir að venjulegum leiktíma lauk.

Loksins loksins sigur hjá Liverpool. Vonandi snýst gæfan okkur í hag.