Örvitinn

helvítis reykingarviðbjóður

Jæja, ég er kominn aftur til vinnur eftir að hafa horft á Liverpool sigra West Ham 3-0. Fékk mér hamborgara, franskar og stóran bjór á 850kr. Ekkert nema gott um það að segja.

Það var fámennt á staðnum en ekki get ég sagt að það hafi verið góðmennt.

Allir þarna inni voru reykjandi. Ég anga af viðbjóðslegri reykingarstibbu eftir að hafa horft á einn fótboltaleik.

"Já en ef reykingarfólk má ekki reykja á kaffihúsum hvar á það þá að reykja?"

Tja, það gæti troðið hausnum upp í rassgatið á sér og reykt þar, helvítis hallærisaumingjar. Keðjureykjandi vesalingar að horfa á fótboltaleik. Það ætti að taka þetta helvítis reykingarpakk út og rassskella það.

Hvernig stendur á því að ég þarf að leggja það á mig að anda að mér þessum viðbjóði bara vegna þess að einhverjir aumingjar geta ekki setið kyrrir í 10 mínútur án þess að stinga upp í sig einhverju reðurlíki og sjúga það. Af hverju kemur þetta lið ekki bara úr skápnum, það væri mun einfaldara. Já Þú ert aumingi ef þú reykir nálægt mér.

Nú sé ég sjálfsvorkunina hellast yfir reykingarhyskið. "Þú veist ekki hvað það er erfitt að hætta" ... "Getur fólk sem þolir ekki reykingar ekki bara verið heima hjá sér" ... "Ég þori ekki að horfast í augu við eigin kynhneigð" Drullist til að hætta að reykja helvítis aumingjar. Hver er það sem stjórnar ykkar lífið? Þið sjálf eða reðurlíkið sem þið troðið upp í ykkur við hvert tækifæri? Ég er ekki vondur við ykkur, ég segi hlutina bara hreint út. Ykkur er enginn greiði gerður með því að fólk tipli í kringum ykkur. Æjæ hvað þið eigið bágt, en hvað þið eruð mikil fórnarlömb... æjæjæjæ æl.

Ég pirraður.... nei heldurðu það.

kvabb
Athugasemdir

Nscrd - 02/02/03 17:48 #

Amen fyrir því