Örvitinn

Djöfull maður

Ég skil ekkert í þessari þyngdartölu. 87,7 kíló, fjandinn hafi það. Ég borðaði ekkert svo mikið í gær.

Hjólaði í ræktina í gærmorgun, tók létta æfingu. Hjólaði svo í vinnuna, borðaði pasta í hádeginu (hugsanlega aðeins of mikið), gróft brauð um fimm leitið og svo grillaðan kjúkling hjá foreldrum mínum í gærkvöldi. Svona tvær bringur þegar allt er talið, kúskús og salat.

Djöfull verð ég pirraður að sjá svona tölu. Hafði svo reyndar fjörlegar hægðir í morgun, en það var eftir vigtun.

Æi, ég get ekki verið að stressa mig á þessu núna, átta dagar í release.

heilsa