Örvitinn

sælgætissukk

Það kemur fyrir þegar menn vinna hér fram á nótt að farið er og verslað heilabensín, sælgæti og snakk. Ég hef gert lítið af því að éta slíkt glundur, páskarnir voru smá undantekning en í nótt er ég búinn að éta viðbjóðslega mikið sælgæti. Ekki laust við að maður sé í smá sykursjokki.

Spiluðum fussball í tilefni þess klukkan hálf tvö. Hvað hefur fólk annars betra að gera við tímann aðfaranótt mánudags en að vinna.

31 tími til stefnu.

Bráðlega hefst lokakafli betateprufunar á EVE, þá munu allir leikmenn fá alla hæfileika (skills) sem hægt er að fá og hrúgu af peningum.

dagbók
Athugasemdir

JBJ - 05/05/03 09:15 #

Hmmm... "Riddari" fékk 500millur, "Riddari 3rd" fékk 500 millur en "Riddari 2nd" fékk 0 isk en full skills :(

JBJ - 05/05/03 10:25 #

Ahh.. allir chars sem voru með 0 isk fyrir fengu ekki pening en þó full skills.. óháð aldri þeirra