Örvitinn

Rekinn

Það er voðalega lítið hægt að fegra þetta. Í dag var mér sagt upp störfum hjá CCP.

Það var lengi ljóst í mínum huga að fyrirtækið myndi þurfa að fækka fólki eftir að leikurinn kæmi út en ég hafði bundið vonir við að ég yrði ekki í þeim hópi. Sú staðreynd að fjöldi áskrifenda er ekki enn jafn mikill og þarf til að standa undir rekstri flýtir þessum aðgerðum.

Ég á inni tvöfalt sumarfrí þar sem ég tók ég ekkert frí í fyrra og svo er þriggja mánaða uppsagnarfrestur sem ég mun ekki vinna. Ég hef því ágætan tíma til að leita mér að vinnu, held það sé best að hefjast handa strax.

Ég verð samt eitthvað að slaka á, ég var á leiðinni í sumarfrí í næstu viku. Það hefst því fyrr en ég ráðgerði.

prívat
Athugasemdir

Regin - 30/06/03 22:06 #

Helv. var leiðinlegt að heyra þetta. Ég hef nú trú á að þú finnir vinnu í hvelli. Maður með reynslu. Var mörgum sagt upp?

Matti Á. - 30/06/03 22:15 #

Ég hef ekki hugmynd um hversu mörgum eða hverjum var sagt upp. Gat ekki skilið það öðruvísi í dag en að um væri að ræða 4-5 hausa.

JBJ - 01/07/03 10:26 #

:(

Kata - 01/07/03 11:28 #

Ég samhryggist Matti minn! Ég er viss um að það verður slegist um þig á atvinnumarkaðinum, þú finnur eitthvað sem þér líkar. Þeir hjá CCP eiga þig hvort sem er ekki skilið. Baráttukveðjur Kata

Már Örlygsson - 02/07/03 02:34 #

Leitt að heyra. Gangi þér sem allra best að finna eitthvað skemmtilegt að gera.

Hulda Katrín - 02/07/03 08:34 #

Gangi þér vel að finna nýja vinnu, heilmikil endurnýjun í haust á vinnumarkaðinum. Þú ert þannig séð næstum því á besta tíma ársins til að finna vinnu ;) ...always look at the bri.... Kveðja, Hulda

Davíð - 05/07/03 17:02 #

.....Þetta er nú leiðinlegt að heyra kallinn minn. Einhvern tímann sagði einhver "þegar einar dyr lokast þá opnast 10 aðrar." Þú átt eftir að detta á flott dæmi í haust og gefur þessum gaurum "puttann."

Hr. Muzak - 09/07/03 09:42 #

We believe in you man! :) Þú átt eftir að pluma þig fínt, sjáðu til, það er í raun ekkert svo mikið atvinnuleysi í bransanum nema menn séu vita talentlausir. Það er nóg að gera fyrir snilla eins og þig maður!

You Go boy!