Örvitinn

Þyngdarkomment

Regin skrifaði athugasemd sem ég set hér inn í staðin:

Ég var að skoða þyngdargrafið. Þetta er agalegt! Það kemur þarna smá pása eftir karlinn var að seta nýtt lággildi á hverjum degi, og grafið byrjar aftur langt fyrir ofan allt. Held að þú þurfir að grafa upp gamlar birgðir af Nupolett einhverstaðar :)

Eins og ég bendi á hér þyngdist ég hrottalega í þessari sumarbústaðarferð :-( Það verður streð að ná þessu af, sérstaklega þessa dagana þegar Gyða er að vinna langt fram á kvöld og ég hef ekki tíma til að fara í ræktina.

Mér þótti verst að sjá að þyngdartala gærdagsins, morgunin eftir leik, var yfir 86kg :-( Það staðfestir endanlega að ég bætti á mig rúmlega 2kg í þessari bústaðarferð, ég held að þar hafi bjórdrykkjan skipt mestu máli, ég drakk aldrei mikið í einu, en ég sötraði 2-3 á hverju kvöldi. Bjór er semsagt kominn á bannlista, ég fékk mér samt einn lítinn í gærkvöldi :-|

Ég verð að fara að komast reglulega í ræktina aftur, það er lykillinn að þessu öllu saman. Ef þetta heldur svona áfram verð ég 100 kíló fyrir jól :-(

heilsa prívat