Örvitinn

Vantrú

Undanfarið hafa ýmsar góðar greinar birst á vantrú. Mæli með því að þið kíkið þangað.

Eitthvað er um rökræður en gvuðfræðingarnir á annál sýna sig ekki enda held ég að þeim líði flestum betur þegar þeir geta komist hjá því að ræða þessi mál. Þeir munu samt ekki fá neinn frið :-)

Ég hef ekki skrifað vantrúargrein í nokkurn tíma, er alltof latur við þetta, er alltaf að byrja á einhverju en klára ekki. Stefni á að klára pistil í kvöld, kominn tími á að ganga frá hómópatíugreininni. Annars er ágætt efni í grein hér.

Kíkið á vantrú, þetta er gott stöff.

efahyggja
Athugasemdir

Skúli - 07/11/03 16:12 #

Við Birgir höfum nú verið í samræðum t.d. á http://birgir.com/000136.html Sýnist nú reyndar á öllu að við séum báðir tilbúnir í smá pásu - en tökum örugglega upp þráðinn síðar meir, enda er Birgir maður viðræðugóður.

Skrifaðu svo endilega eitthvað fallegt um kristniboðsdaginn. Þið hugsjónamennirnir ættuð að skilja hvað býr þar að baki.

Annars sagðirðu einhvers staðar að ekki væri hægt að ræða málefnalega við okkur um þessa hluti - var það ekki rétt skilið hjá mér?

Matti Á. - 07/11/03 17:03 #

Taktu eftir feitletraða orðinu fyrir neðan (skáletrað með em taginu í textanum að ofan).

enda held ég að þeim líði flestum betur
Varðandi ummæli mín hjá Birgi hafði ég þegar svarað þér þar, en það sakar ekki að birta svarið hér líka.
Ég bara nenni ekki að taka þátt í samræðum við einhvern sem er fyrirfram búinn að hafna því að hægt sé að ræða við mig málefnalega.

Skúli minn, þú snýrð hlutunum við. Ég reyni sífellt að ræða málefnalega við trúmenn, en reyndar svara ég skæting með skítkasti þegar við á.

Það er einfaldlega mín reynsla af trúmönnum, eftir margra ára þras á spjallþráðum, að í raun þykir ykkur (flestum) ómálefnalegt að heimsmynd ykkar sé gagnrýnd. Þetta má rökstyðja með óteljandi dæmum, þar sem rökum trúlausra er svara með ad hominem vaðli.

Ég játa að ég gerði mistök í athugasemd minni hjá Birgi, þar sem ég sleppti því að nota orðið flestir. Að öðru leyti stend ég við athugasemdina.

Um kristniboð má ýmislegt segja.

Skúli - 07/11/03 17:22 #

Jæja, ég tek þetta þá aftur. :)

birgir.com - 07/11/03 17:23 #

Ef þú klárar hómópatapistilinn í kvöld áttu slott morgundagsins. Ég fagna hverju nýju innleggi frá þér.