Örvitinn

"Þetta á að vera svona"

Þegar maður var lítill og gerði eitthvað vitlaust sagði maður gjarnan, "þetta á að vera svona" jafnvel þó maður vissi að það væri ekki satt.

Mér finnst fyndið að lesa viðtöl við íslenska athafnamenn sem eru spurðir hvernig viðskiptin ganga. "Nú hafið þið ekki selt jafn mikið af vörunni og væntingar stóðu til, hvað segirðu við því?" "Þetta er einmitt það sem við ætluðum okkur, það hafa svo margir farið illa út úr því að selja mikið að við ákváðum að selja lítið, en við erum á næstunni að fara út í það að selja mikið, nú er lag."

Fyrirtækið, varan eða viðtölin verða ekki tilgreind nánar :-)

Ýmislegt
Athugasemdir

Gummi Jóh - 17/11/03 23:56 #

Ef ég giska á rétt, myndirðu þá jánka því?

Gummi Jóh - 18/11/03 16:35 #

Ég var svo á því að hafa lesið viðtal rétt áður en ég las bloggið þitt sem passaði við þetta.

En fæ víst aldrei að vita hvort það sé rétt hjá mér eða ekki :)