Örvitinn

Laun Karl Malone í mogganum

Hvað er athugavert við eftirfarandi klausu úr þessari frétt í mogganum? Er Malone að fórna miklu til að spila með Lakers?

mbl_laun_karlmalone.gif

14:08
Það sem er athugavert er lesskilningur minn :-) Því Karl Malone lækkaði í launum, var með um 19 milljónir dollara á síðasta ári en er með einungis eina og hálfa milljón dollara í laun hjá Lakers. Ég las þetta einhvern vegin þannig að hann væri með 70 milljónir á viku en það kemur hvergi fram í textanum, mea culpa :-)

Ýmislegt
Athugasemdir

Einar Örn - 11/03/04 18:01 #

Jeessss!!! Ég las þetta áðan og fann ekkert vitlaust við þetta.

Ég fór að efast alveg stórkostlega um gáfur mínar víst ég var að missa af einhverju svona augljósu. Las textann tvisvar eða þrisvar :-)

Ágætt að vita að þetta var bull hjá þér.

Matti Á. - 11/03/04 18:06 #

Hehe, þetta var bara skammhlaup í kollinum á mér, merkilegt hvað maður getur stundum túlkað hlutina vitlaust. Ég er einmitt sérstakur áhugamaður um slíka hegðun hjá fólki og því var þetta dálítið gott á mig :-)