Örvitinn

Inga María veik

Inga María er veik, búin að vera slöpp í allan dag og sefur núna í herberginu sínu. Hún var með niðurgang í gær og var slöpp í morgun, kúrði í fanginu mínu fyrir fram an sjónvarpið í morgun.

Gyða og Kolla fóru í barnaafmæli, Kolla klædd eins og köttur, skemmtir sér örugglega vel.

15:15
Ég fór upp og kíkti á hana, hún lá þá í rúminu sínu með hálfopin augun - teygði hendurnar til mín þegar hún sá mig.

Við sitjum núna niðri, hún drekkur appelsín og við borðum saman harðfisk.

fjölskyldan prívat
Athugasemdir

Sirrý - 05/04/04 08:17 #

Hvernig er hún í dag ? Vona að hún sé orðin hress.

Matti Á. - 05/04/04 10:02 #

Hún er mun hressari og er að horfa á stubbaspólu en samt er hún ekki alveg 100%