Inga María er lasin, hitlaus og ekkert nefrennsli en hún er slöpp. Gyða er heima með henni. Ég hitti þær örstutt í morgun áður en ég fór í vinnuna.
Henni líður betur núna og var farin að syngja með sjónvarpinu rétt áðan, pantaði svo franskar í hádegismat.
Ein ástæða þess að ég hef fyrir því að skrifa um veikindi stelpnanna, fyrir utan tilkynningarskylduna fyrir ættingja og vini, er að það er ansi þægilegt að geta kíkt í dagbókina til að fylgjast með því hversu tíð veikindi stelpnanna eru. Mér hefur þótt Inga María vera ansi oft veik undanfarið - en þegar ég skoða þetta betur er þetta ekki jafn slæmt og mig minnti.
Það er rosalega sniðugt að halda dagbók um veikindi barnana. en vona samt að stelpan hressist sem fyrst.
kv Sirrý
|
www.flickr.com
|