Örvitinn

Langur niðurtími

Jæja, litli serverinn minn er loks kominn í gang eftir lengsta niðurtíma í sögu hans, hvarf af netinu á miðvikudagskvöld. Ég var hræddur um að vélin hefði farið í klessu en það var bara rafmagnsleysi sem olli þessu. Serverinn er staddur í herbergi úti í bæ í góðu yfirlæti en ég hef ekki beinan aðgang að honum, það var því dæmalaus óheppni að rafmagnið skyldi fara af kvöldið fyrir frídag.

Ég ætla að taka backup í kvöld, er búinn að vera að stressa mig yfir því að hafa tapað helling af efni, tók síðast afrit af grunninum fyrir hálfu ári.

Baddi kerfisstjóri fær enn og aftur þakkir fyrir að kippa málum í lag.

tölvuvesen
Athugasemdir

sirry - 18/06/04 12:05 #

Mér var alveg hætt að lítast á hvað síðan var lengi úti, gott að hún er komin inn aftur :C)