Meðan flestir borgarbúar lágu í sólbaði skelltum við okkur með stelpurnar í bíó að sjá Shrek 2 enda búin að fá nóg af sól undanfarið. Skemmtum okkur öll vel, foreldrarnir ekkert síður en þær yngri.
Til lítils að fjalla ítarlega um myndina, vísanir í hin ýmsu barnaævintýri og kvikmyndir eru stórskemmtileg og söguþráðurinn ágætur.
Ég virtist vera eini maðurinn í bíó sem las umsögnina um myndina í blaðinu í dag því allir aðrir ruku úr salnum um leið og kreditlistinn birtist og misstu því af lokaatriðinu.
Sá hana í gærkvöldi og rauk út eins og fífl :-( Las síðan í dag að ég hefði misst af lokaatriðinu.
Ég hefði sjálfur verið löngu farinn út ef ég hefði ekki rekist á umsögnina í blaðinu, þetta var svosem ekkert rosalega merkilegt atriði, en samt dálítið skemmtilegt. Þú verður bara að skjótast aftur á myndina ;-)
|
www.flickr.com
|