Örvitinn

DxO Optics Pro, annað sýnidæmi

Henti inn annnarri mynd á test síðuna fyrir DxO Optics Pro sem ég fjallaði örstutt um nýlega. Það er nóg að setja bendilinn yfir myndina til að sjá endurbætta útgáfu.

Ég fjárfesti semsagt í þessum hugbúnaði og í uppfærslu sem kom út fyrir viku eða svo er búið að laga þá bögga sem voru að pirra mig. Ég get núna opnað allar gömlu myndirnar og notast við Nikon forritið til að færa myndir úr myndavél yfir í tölvuna. Ástæðan fyrir því að ég vil frekar notað Nikon forritið en eitthvað annað, maður getur t.d. kóperað myndirnar beint í windows, er að Nikon forritið lagar exif upplýsingarnar um leið og það flytur myndirnar.

Ég hef því notað þetta á allar myndir sem ég hef tekið undanfarið (frá 24. júní) og finnst muna nokkru.

myndir