Örvitinn

Syfjaður

Skrítið hvað ég er þreyttur eftir tæplega sex tíma svefn. Glápti á Liverpool-Roma til rétt rúmlega tvö í nótt, fór á fætur með stelpunum klukkan átta.

Á svona stundum kemur sér illa að drekka ekki kaffi, kók eða aðra koffíndrykki að staðaldri. Spurning um að rölta út í gettó og kaupa magic.

dagbók
Athugasemdir

Sirrý - 05/08/04 08:57 #

Það má nú hella í sig einum bolla af kaffi í neyð.

Matti Á. - 05/08/04 10:26 #

Það mætti gera það ef kaffi væri ekki viðbjóður ;-)

Sirry - 05/08/04 15:38 #

Hvaða vitleysa er þetta í þér. Þér fannst alveg örugglega rauðvín viski eða koníak ekki gott þegar þú bragðaðir það í fyrsta sinn. Það er eins með kaffi, það er vont en það venst.