Örvitinn

Af hverju er leikurinn ekki á Sýn?

Hvernig stendur á því að síðari leikur Liverpool og Grazer AK í forkeppni Meistaradeildarinnar er ekki sýndur á Sýn? Mér finnst ég svikinn, skyldi auglýsingarnar á Sýn þannig að þeir myndu sýna báða leikina. Hafa verið að auglýsa stíft Liverpool í meistaradeildinni, ég vissi ekki að það stæði fyrir einn leik.

Veit ekki alveg af hverju ég er að borga fyrir Sýn, spurning um að segja upp áskriftinni og bíða þar til meistaradeildin byrjar.

Ljóst að ég fer á öldurhús í kvöld og glápi á leikinn.

13:35
Kristján Atli fékk skýringu á málinu

boltinn
Athugasemdir

Sirry - 24/08/04 10:51 #

Ég er viss um að ef þú verður svikin eins og síðast að þú getir dregið manninn minn á öldurhúsið.

Annars er ég sammála til hvers er maður með sýn.

Matti Á. - 24/08/04 14:38 #

Hvernig sem fer, þá verð ég á Players í kvöld. Er jafnvel að spá í að mæta snemma til að ná þokkalegu sæti, fá mér svo eitthvað gums að éta á staðnum.