Örvitinn

Kvenfélagsfundur

Kvenfélagið fundar í kvöld.

Jólahlaðborð í vinnunni í kvöld en maður fórnar slíku fyrir svona hitting enda afar sjaldan sem maður fær tækifæri til að hitta suma. Boð með vinnunni næstu helgi líka, læt það duga.

Stefnum á bjór, keilu, bjór, kvöldmat, bjór og spjall. Og bjór. Ég spái almennri ölvun í kvöld.

Annars vakti ég til hálf þrjú í nótt að lesa og rembast við að þýða texta um trú og skynsemi - vona að ég verði ekki syfjaður í kvöld. Spurning um að splæsa á vodka í red-bull (eða magic) til að redda því.

dagbók