Örvitinn

Þegar Mellor skoraði

Mæli með því að stuðningsmenn Liverpool skelli sér á opinberu síðuna og hlusti á lýsinguna þegar Mellor skoraði sigurmarkið á móti Arsenal. Það kostar ekkert að sækja þessa skrá (tja, fyrir utan erlenda niðurhalið, en wmw skráin er ekki nema 1.7MB).

Steve Hunter missir stjórn á sér og röddina um leið, algjör snilld.

Ég varð aftur meir við að hlusta á þetta :-P

Mellor fagnar

boltinn
Athugasemdir

Kristján Atli - 29/11/04 23:51 #

Ég var búinn að heyra Hunter tapa sér fyrr í dag, en þessi mynd er algjör snilld. Myndin mun hlýja mér það sem eftir er ársins, ekki spurning!

Matti Á. - 30/11/04 00:14 #

Sá vísunina á Hunter tapa sér og þessa mynd á ynwa spjallinu sem ég skoða reglulega.