Örvitinn

Merkisdagur hjá Kollu og Ingu Maríu

Kolla er fimm ára í dag. Búin að vera óskaplega spennt útaf þessu afmæli síðasta hálfa árið :-) Hún vaknaði á undan mér og Ingu Maríu í morgun - við sungum fyrir hana þegar við fórum á fætur klukkan átta.

Inga María er að færa sig yfir á Hvolpadeild, er að hætta á Bangsadeild sem er fyrir yngstu krakkana. Hún er óskaplega hress og kát með þetta og aðlögun hefur gengið rosalega vel. Fór með hana á bangsadeild í síðasta sinn í morgun - hún tók með pakka handa fóstrunum.

Kolla fór með ís í leikskólann og fær kórónu í dag - held hún njóti sín afar vel í aðalhlutverki. Afmælisveislan verður á sunnudaginn klukkan tvö. Vinkonur hennar af leikskólanum, Harpa og Katsja mæta í afmælið, klukkan fjögur á rölta þær svo yfir til Kötsju sem verður fimm ára á morgun og heldur líka upp á afmælið sitt á sunnudag. Það þarf að púsla þessu öllu saman.

Tók mynd af Kollu og Ingu Maríu á ganginum í morgun, merkisdagur hjá þeim báðum.

Kolla og Inga María á ganginum í morgun

fjölskyldan
Athugasemdir

sirry - 06/01/05 22:04 #

Innilega til hamingju með afmælið Kolla vona að þú hafir átt góðan dag. Til hamingju með stóru stelpurnar ykkar Matti og Gyða.

Halldór E. - 07/01/05 00:27 #

Til hamingju með stelpurnar tvær.