Fréttaflóð af aðþrengdum eiginkonum
Er það ímyndun í mér, eða er "frétt" sem tengist sjónvarpsþættinum Aðþrengdar eiginkonur á hverjum degi á mbl? Sá frétt áðan og fannst eins og ég væri alltaf að rekast á eitthvað tengt þættinum, þetta fann ég með leit á mbl, fyrsta fréttin er frá því í febrúar, skömmu áður en byrjað var að sýna þættina hér.
- 25.4 Eva vill ekki giftast
- 22.4 Longoriu langar í Brad
- 15.4 Fær Sharapova hlutverk í Aðþrengdum eiginkonum?
- 12.4 „Aðþrengdu eiginkonurnar“ neita því að vera ósáttar
- 07.4 „Aðþrengdar eiginkonur“ halda áfram
- 06.4 Litlir kærleikar sagðir milli „aðþrengdra eiginkvenna“
- 05.4 Aðþrengdar eiginkonur: Afþökkuðu Britney Spears
- 09.3 Karlmenn áreita „aðþrengda eiginkonu“
- 08.3 Teri bauðst til að hella uppá
- 04.3 Hatcher fær 17,4 milljónir fyrir hvern þátt
- 25.2 Teri Hatcher segist á tímabili hafa hugleitt að kaupa kynlífsþjónustu
- 07.2 Hugstola Oprah
- 01.2 Teri Hatcher: „Brjóstin á mér eru alvöru“
Það er forvitnilegt að fylgjast með því hvernig auglýsingar eru farnar að troða sér inn í fréttaefni, ég held það sé engin spurning að almannatengslaskrifstofa úti í heimi dreifir svona "fréttum". Væri ekki heiðarlegra ef þetta væri bara merkt sem auglýsingar. Kannski sér ákafur aðdáandi þáttanna um slúðurfréttirnar hjá Morgunblaðinu.
Og svo horfi ég ekki einu sinni á þessa þætti og les aldrei svona fréttir, nema þegar það er "kynlíf" í fyrirsögninni :-P
Matti Á. - 25/04/05 19:38 #
Ég var sem betur fer ekki sá eini sem sá þetta :-)
Sævar Helgi - 27/04/05 13:55 #
Hmm, eins og Óli bendir á hafa tvær fréttir birst í dag! Þetta er eitthvað skrítið.
Haukur Þorgeirsson - 01/05/05 16:27 #
Þeir láta ekki deigan síga.
Haukur Þorgeirsson - 11/05/05 14:13 #
- 11.5.2005 Kynþokkafyllsta aðþrengda eiginkonan
bió - 11/05/05 20:23 #
- 11.5.2005 Eva efast um að hafa mesta kynþokkann
bió - 24/05/05 11:25 #
Sævar Helgi - 25/05/05 14:26 #
And they keep coming!
bió - 31/05/05 11:16 #
bió - 15/06/05 11:43 #
bió - 03/08/05 11:45 #
bió - 12/08/05 22:32 #
bió - 18/08/05 16:07 #
bió - 22/08/05 10:10 #
bió - 25/08/05 11:03 #
bió - 13/09/05 17:50 #
bió - 21/09/05 09:36 #
Að vísu ansi góð fyrirsögn og tíðni fréttanna hefur nú minnkað talsvert.
bió - 10/11/05 10:23 #
Ekki örvænta, fréttaflóðið er vissulega minna en áður en í dag fáum við þó smá sprænu.